Það hefur nú margt drifið á
daga okkar síðan seinast og stendur nú uppúr hittingurinn hjá
okkur stelpunum á fimmtudaginn fyrir viku en við hittumst
allar heima hjá Gúrý, semsagt ég, Anna Dóra, Sandra og svo
voru Tinna og Gúrý. Mín náttla byrjaði að sötra hvítvínið
sitt og allt í einu var flaskan búin og ég bara hvaða hvaða,
finn ég ekkert á mér eftir heila hvítvín!! En nei nei, 20 mín
seinna var mín orðin blekuð og rullaði út frá Gúrý og niðrí
bæ. Fórum á 2 staði, og þema kvöldsins var að vera með ljót
hálsmen og greinilega taka myndir af okkur með skrýtnum
karlmönnum..humm, sá það ekki fyrr en á myndunum daginn
eftir. Nú vegna ástands mín þá man ég svona parta og parta
(hef ekki verið svona lengi) en það var dansað mikið og vorum
við að til hálf sex held ég bara. Þá tók ég taxa með Gúrý og
Tinnu upp á íslandsbrygge sem ég hefði betur átt að sleppa en
ég varð að taka hjólið mitt heim sem var heima hjá henni..ég
hjólaði semsagt heim, og það geri ég aldrei aftur svona
drukkin!!! Klessti á handrið á brú og var út um alla götu og
svo var fólk að hjóla framhjá mér og dingla á mig..jii minn
sko. En ég komst á lífi heim og kom mér upp og þar byrjaði ég
að leika smá leikrit fyrir Alla minn var mér sagt og bullaði
í svolitla stund þangað til slökkanði á mér..hehe. Takk fyrir
skemmtilegt kvöld stelpur og sem fyrst aftur..þá ætla ég að
fara rólegra í þetta sko!
Nú skólinn gengur bara eins, var lægð smá um
daginn en núna eru að byrja verkefni eftir verkefni..og verður
þannig fram yfir jól! Erum búin að panta farið heim og komum 20des
og förum aftur snemma morguninn 2 jan (huhu get ekki hugsað mér
það.finnst jólin ekki vera búin 2!) En svona fylgir því að vera í
skóla úti og maður verður að taka því..og ætli ég verði ekki að
læra allt jólafríið þannig ekki búast við að ég geti hitt alla!
Skólinn hjá Alla mínum gengur bara vel og sinn vanagang og hann fer
í praktík í enda nóvember og þá verður hann bara að vinna í hálft
ár eða meira..
Nú tíminn líður svo hratt að maður þarf að fara
að huga að jólagjöfum og sonna, það er komin ansi mikill
haustfíingur í mann, gott að kúra bara heim með heitt kakó og
sjónvarp en ég fann það í gærkvöldi hvað það er allt í einu orðið
geggjað kalt hérna..
Það verður mikið að gerast næstu vikur..mamma og
pabbi koma akkurat eftir 2 vikur og svo eru afmæli og matarboð og
alskonar hittingar sem er bara gaman..mikið að gera og svo náttla
skólinn!! en þá líður tíminn hratt og það er fínt
Veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja ykkur
meir en ég er að hugsa um að fara að sjæna mig aðeins, er að kafna
úr kvefi og sleni og Hildur mín er að koma á eftir og verður yfir
helgina, með mömmu sinni og systur, þannig ég verð að fara að snýta
mér og sonna til að vera aðeins smekkleg
Vildi líka þakka
ástkærri mágkonu minni fyrir dýrindismat í gærkvöldi og kósi
heimsókn..gera þetta oftar!!
Hilsen Sibba
P.s. Hlakka líka geggjað að hitta brósa minn um
jólin..